Leikskólinn Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Leikskólakennari í Engjaborg

Leikskólakennari / leiðbeinandi á Engjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi.

Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.

Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum við áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum.

Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og gildum og áherslum leikskólans, einnig að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða önnur sambærileg menntun æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reyrengi 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Metnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar