Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Heimilisfræðikennari hjá Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli leitar að heimilisfræðikennara til starfa. Um er að ræða 50% afleysingarstöðu út skólaárið 2026 – 2027.

Brekkubæjarskóli er grunnskóli þar sem lögð er áhersla á nám, vellíðan og velferð nemenda í jákvæðu og styðjandi skólasamfélagi.

Um er að ræða heimilisfræðikennslu í yngstu bekkjum skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kennsla í heimilisfræði samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla.
  • Undirbúningur og skipulagning kennslu og námsmats.
  • Umsjón með kennsluaðstöðu, tækjum og hráefni.
  • Stuðla að öryggi, hreinlæti og ábyrgri umgengni.
  • Virk þátttaka í teymisvinnu og skólaþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla, leyfisbréf þarf að fylgja umsókn
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist við kennslu heimilisfræði.
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til teymisvinnu.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og fagleg vinnubrögð.
  • Áhugi á velferð, námi og þroska barna.

Lögð er áhersla á jákvætt viðmót, fagmennsku og áhuga á að efla fjölbreytt og skapandi skólastarf. Umsækjendur eru hvattir til að sækja um óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember nk.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS).

Nánari upplýsingar veitir Elsa Lára Arnardóttir skólastjóri í síma 433-1300 og á netfangið [email protected] og Ásmundur Haraldsson aðstoðarskólastjóri í síma 433-1300 og á netfangið [email protected]

Brekkubæjarskóli hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Auglýsing birt5. nóvember 2026
Umsóknarfrestur20. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar