Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Teymisstjóri á heimili fyrir börn

Sveitarfélagið Árborg leitar eftir öflugum, sjálfstæðum og jákvæðum starfsmanni til að gegna stöðu teymisstjóra í þjónustueiningu á heimili fyrir börn. Teymisstjóri ber faglega ábyrgð á daglegri þjónustu og gengur jafnframt vaktir. Helstu markmið starfsins eru að auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda og stuðla að valdeflingu þeirra. Áhersla er á persónulegan stuðning í daglegu lífi, sniðinn að þörfum, aldri, óskum og væntingum hvers og eins. Starf teymisstjóra er skipulagt samkvæmt lögum nr. 38/2018 um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir auk tengdra reglugerða.

Um er að ræða 100% stöðu en gert er ráð fyrir að teymisstjóri sé á vöktum sem hluta af stöðugildi hans.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og umsjón verkefna
  • Samstarf við forstöðumann um faglega ábyrgð
  • Ráðgjöf til starfsmanna ásamt forstöðumanni
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
  • Samstarf og samráð við aðstandendur
  • Er staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans
  • Tileinkar sér og vinnur eftir hugmyndafræði málefna fatlaðs fólks og þjónandi leiðsagnar
  • Tekur þátt í mönnun þjónustueiningarinnar með því að ganga fastar vaktir og taka aukavaktir þegar ekki tekst að manna vaktir með öðrum hætti.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfamenntun eða sambærileg háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- og/eða félagsvísinda
  • Þekking og reynsla af þjónustu við fatlað fólk mikilvæg
  • Þekking og reynsla á fötlunum barna og áhrifum þeirra á daglegt líf mikilvæg
  • Reynsla af stjórnun eða sambærilegu ábyrgðarstarfi skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar