
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli er heildstæðu grunnskóli með nemendur í 1. - 10. bekk. Innan skólans er stórt alþjóðanámsver og sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Skólinn er starfrækur í tveimur húsum, í Digranesi, Álfhólsvegi 100 og Hjalla, Álfhólsvegi 120. Íþróttir eru kenndar í Íþróttahúsinu Digranesi og sund í Sundlaug Kópavogs.
Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni. Skólinn leggur áherslu á velferð nemandans og að hver og einn nái að eflast og þroskast út frá eigin forsendum.
Álfhólsskóli leggur áherslu á gott og náið samstarfs við foreldra um velferð nemenda. Hlutverk Álfhólsskóla er að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi í námsumhverfi sem stuðlar að sjálfstæði og þroska einstaklingsins.
Álfhólsskóli hefur þrjú gildi að leiðarljósi en þau eru menntun, sjálfstæði og ánægja.

Þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur í Álfhólsskóla
Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfána- og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með kennurum og öðrum samstafsaðilum að námi og þroska nemenda.
- Annast þroska- og atferlisþjálfun nemenda.
- Veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila.
- Kemur að gerð einstaklingsáætlana.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur
- Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
- Fagmennska, frumkvæði, metnaður og áhugi
- Áhersla er lögð á lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum
- Mjög góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur24. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (6)

Snemmtæk íhlutun - HOLT
Leikskólinn Holt

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður