

Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lyflækningadeild
Langar þig að vinna á fjölbreyttum og skemmtilegum vinnustað, með frábæru fagfólki?
Við óskum eftir öflugum og áhugasömum hjúkrunarnemum til starfa á bráðalyflækningadeild B7 í Fossvogi
Deildin er 19 rúma bráðalyflækningadeild ætluð sjúklingum með bráð og langvinn lyflæknisfræðileg vandamál sem þarfnast innlagnar á sjúkrahús og falla undir almennar lyflækningar. Hjúkrunarviðfangsefnin á deildinni eru mjög fjölbreytt.
Á deildinni starfar öflugur hópur í þverfaglegum teymum og mikil tækifæri eru til að þróast í starfi. Hópurinn á deildinni er samhentur og ríkir góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Á deildinni er líka öflug skemmtinefnd.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Starfshlutfall er 20-100% vinna og er tekið tillit til námsins við skipulag vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu, nám og einkalíf.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samræmi við starfslýsingu hjúkrunarnema
- Skrá hjúkrun í samræmi við reglur Landspítala
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Hjúkrunarnemi á 1-4 ári
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
- Faglegur metnaður
- Íslenskukunnátta áskilin
Íslenska




































