

Sérnámslæknar í heimilislækningum
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir lausar til umsóknar tvær sérnámsstöður í heimilislækningum á Ísafirði. Stöðurnar eru lausar frá 1. mars 2027. Ráðning er með fyrirvara um samþykki kennsluráðs sérnáms í heimilislækningum á Íslandi. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) heldur utan um sérnámið á landsvísu, https://throunarmidstod.is/kennsla/sernam-i-heimilislaekningum/.
Boðið er upp á góða aðlögun í starfi og aðstoð við öflun húsnæðis auk annarra hlunninda.
Á Vestfjörðum færðu ekki aðeins fjölbreytt og spennandi sérnám, heldur líka einstök lífgæði, náttúruna rétt handan við hornið og góða tekjumöguleika.
Sérnámið:
Sérnámið fer fram undir virkri handleiðslu sérfræðings í heimilislækningum sem fylgir sérnámslækni eftir allan námstíman. Sérnámslæknir skipuleggur nám sitt í samráði við handleiðara og kennslustjóra sérnáms. Námið fer fram á heilsugæslustöð og sjúkrahúsi.
Kostir sérnáms:
- Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga
- Einstaklingsmiðuð námsáætlun
- Hópkennsla annan hvern mánudag
- Þátttaka í vísindavinnu
- Blokkasamningur við Landspítala varðandi spítalahluta sérnámsins
Nánari upplýsingar um sérnámið veitir Kristún Guðmundsdóttir, yfirlæknir heilsugæslu. [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Viðbragðsvaktir
- Samvinna þvert á stofnunina með öðrum fagaðilum
- Nám samhliða starfi
- Rannsóknir og gæðastarf
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Mjög góðir samskiptahæfileikar, fagmennska og jákvæðni
- Hæfni og vilji til að vinna náið með skjólstæðingum og samstarfsfólki
- Frumkvæði, faglegur metnaður og geta til að starfa sjálfstætt
- Vandvirkni og samviskusemi
- Lausnamiðuð hugsun og vinnubrögð
- Vilji til þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu
- Áhugi á vísindavinnu æskilegur


