Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ

Heilsugæslan Garðabæ leitar að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á heilsugæslustöðinni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Heilsugæslan Garðabæ býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf hjúkrunarfræðings er fjölbreytt og víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta. Í bókaðri móttöku er erindum sem eru ekki bráð sinnt, s.s. lyfjagjöfum, saumatöku, sárameðferð og smáaðgerðum.

Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðiskerfið og þjónustuúrræði. Mikil teymisvinna er á milli fagstétta.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 

  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi 

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur 

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð 

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu 

  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur 

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki 

  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta 

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar