

Móttökuritari - Heimahjúkrun HH
Ert þú jákvæð og þjónustulunduð manneskja sem hefur gaman að því að tala við fólk?
Við leitum að móttökuritara sem tekur á móti fólki með bros á vör, hefur góða samskiptahæfni og nýtur þess að starfa í líflegu umhverfi. Við leggjum áherslu á hlýlegar móttökur og framúrskarndi þjónustu.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabænum. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi.
Um er að ræða 60-70% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
-
Móttaka símtala
-
Móttaka sýna og lyfjasendinga
-
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
-
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi einingarinnar
-
Umsjónaraðili kaffistofu starfsfólks, aðfanga og skrifstofuvara
-
Þrif og sótthreinsun hjúkrunaráhalda
-
Umsýsla vegna rekstrarleigubifreiða einingarinnar
-
Uppgjör vikulega
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Nám sem nýtist í starfi
-
Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
-
Reynsla af Sögukerfi kostur
-
Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
-
Sjálfsstæði í starfi, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Góð íslenskukunnátta
-
Enskukunnátta æskileg
Íslenska
Enska

















