
Framkvæmdastjóri Badmintonsambands Íslands
Badmintonsamband Íslands (BSÍ) leitar að öflugum og drífandi framkvæmdastjóra til starfa. BSÍ er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fer með málefni badmintoníþróttarinnar á landsvísu, þar á meðal afreksmál og landslið, mótahald, útbreiðslu og fræðslu.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins og framfylgir stefnu og ákvörðunum stjórnar. Hann heyrir beint undir formann og stjórn. Starfið sameinar rekstur, utanumhald og uppbyggingu og hentar einstaklingi sem á auðvelt með að koma verkefnum frá hugmynd í framkvæmd.
Um er að ræða hlutastarf með sveigjanlegu starfshlutfalli og vinnutíma í samráði við stjórn.
• Dagleg stjórnun og rekstur skrifstofu BSÍ
• Fjármál sambandsins, áætlanagerð og eftirfylgni með rekstri
• Samskipti við stjórn, nefndir, aðildarfélög og ÍSÍ
• Utanumhald um mótahald
• Umsjón með afreksmálum
• Umsjón með útbreiðslu og fræðslu
• Öflun styrkja og samstarfssamninga
• Kynningar og markaðsmál
• Stefnumótun og uppbygging í samstarfi við stjórn
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, íþróttafræði eða sambærilegu
• Reynsla af stjórnun, rekstri eða verkefnastjórnun
• Þekking og skilningur á fjármálum og rekstri
• Þekking á íþróttahreyfingunni er kostur. Þekking á badminton er kostur en ekki skilyrði
• Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvætt hugarfar og hæfni til að byggja upp og viðhalda góðum tengslum við ólíka hagaðila
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun badmintons á Íslandi, sjálfstæði í starfi, fjölbreytt verkefni og sveigjanlegan vinnutíma.
Íslenska
Enska










