

Sálfræðingur óskast í öflugt teymi á Heilsugæslunni Hamraborg
Heilsugæslan Hamraborg leitar að metnaðarfullum sálfræðingi sem hefur áhuga á framþróun geðheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar. Fram undan er spennandi verkefni þar sem verið er að leggja sterkari áherslu á teymismiðaða nálgun í þjónustu.
Unnið verður eftir nýju þjónustulíkani þar sem þverfagleg teymisvinna og forflokkun erinda til allra heilbrigðisstétta verða í forgrunni. Markmiðið er að nýta sérþekkingu hverrar fagstéttar sem best og beina erindum í réttan farveg frá upphafi, þannig að skjólstæðingar fái þjónustu sem mætir þörfum þeirra.
Sálfræðingur gegnir mikilvægu hlutverki í teyminu með mati á geðrænum vanda, ráðgjöf og meðferð við vægum til miðlungs vanda. Þegar þörf er á umfangsmeiri þjónustu tekur sálfræðingur þátt í að koma málum í viðeigandi farveg. Í starfinu felst tækifæri til að taka virkan þátt innleiðingu á nýju þjónustulíkan og nýta sálfræðilega sérþekkingu til að efla þjónustu við skjólstæðinga.
Um er að ræða er 50-60% starf tímabundið í eitt ár, þó með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Hamraborg ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi. Þar að auki er staðsetningin stöðvarinnar afar góð með greiðum samgöngum úr öllum áttum.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins.
-
Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
-
Greining og mat á geðrænum vanda
-
Gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
-
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
-
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
-
Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
-
Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
-
5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
-
Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna
-
Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
-
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
-
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
-
Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
-
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
-
Góð íslensku og enskukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska



