

Sjúkraliði - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæslan Hlíðum auglýsir eftir öflugum sjúkraliða í tímabundið starf. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi. Starfið er fjölbreytt og gefandi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Hlíðum starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Á stöðinni ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
-
Þátttaka í móttöku skjólstæðinga ásamt öðrum starfsmönnum stöðvarinnar
-
Framkvæmd ýmissa rannsókna og prófa
-
Umsjón með umhverfi starfseininga, birgðum og búnaði
-
Leiðbeiningar og fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra
-
Þátttaka í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stöðvarinnar
-
Starfsleyfi sem sjúkraliði.
-
Æskilegt er að viðkomandi hafi 3 ára reynslu sem sjúkraliði
-
Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
-
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
-
Frumkvæði og geta til að forgangsraða verkefnum
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska

















