

Talmeinafræðingar - Heyrnar og talmeinastöð HH
Vilt þú taka þátt í að þróa nýtt verkefni talmeinafræðinga í skólaþjónustu?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að reyndum talmeinafræðingum til starfa hjá Heyrnar- og talmeinastöð í spennandi þróunarverkefni sem þegar er hafið. Markmið verkefnisins er að þróa verklag sem miðar að því að veita börnum talþjálfun í sínu nærumhverfi. Starfað er í þverfaglegum teymum í nokkrum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða tímabundið tilraunaverkefni sem áætlað er að ljúki í ágúst 2028.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Um er að ræða 70-100% tímabundið starf og í boði eru nokkrar stöður talmeinafræðinga. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni talmeinafræðing sem starfar undir handleiðslu reynslumeiri talmeinafræðings.
Talmeinafræðingur sinnir meðferð tal- og málmeina innan þeirra grunnskóla sem verkefnið nær til í samvinnu við aðra fagaðila. Hann ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum bestu meðferð og þjónustu sem í boði er á hverjum tíma. Talmeinafræðingur mun stjórna og skipuleggja þjónustu og meðferð innan sinnar starfsstöðvar auk þess að meta árangur meðferðar. Hann er leiðandi í gagnreyndum aðferðum og ber ábyrgð á að innleiða nýjungar í meðferð og þjónustu á starfstöð.
- Íslenskt starfsleyfi sem talmeinafræðingur
- Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu reynds talmeinafræðings en einnig er handleiðsla í boði
- Sérþekking á málþroska barna/unglinga
- Sérþekking á málþroskaröskun DLD æskileg
- Reynsla og áhugi á talþjálfun og almennri meðferð talmeina
- Góð þekking á máltöku barna með dæmigerðan málþroska, frávikum í málþroska og frávikum í málhljóðamyndun/framburði hljóða
- Góð þekking á snemmtækri íhlutun m.t.t. barna með frávik í málþroska
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Mjög góð skipulagshæfni, færni í forgangsröðun og sveigjanleiki
- Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
- Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska




