

Sjúkraþjálfari í stoðkerfismóttöku - Heilsugæslan Hamraborg
Heilsugæslan Hamraborg leitar að metnaðarfullum og áhugasömum sjúkraþjálfara til starfa við stoðkerfismóttöku. Í starfinu felst að meta, greina og veita ráðgjöf vegna stoðkerfisvanda skjólstæðinga. Sjúkraþjálfari gegnir jafnframt lykilhlutverki í að beina skjólstæðingum í rétta þjónustu og stuðla að skjótari bata.
Um er að ræða 50% tímabundið starf í eitt ár og er æskilegt að viðkomandi geti hafið 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Hamraborg ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi. Þar að auki er staðsetningin stöðvarinnar afar góð með greiðum samgöngum úr öllum áttum.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
-
Metur, greinir og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga
-
Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
-
Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
-
Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
-
Leiðbeinir samstarfsfólki
-
Löggilt sjúkraþjálfarapróf
-
Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari æskileg
-
Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
-
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
-
Góð íslensku og enskukunnátta
Íslenska
Enska







