

Sjúkraþjálfari
Kjarkur endurhæfing óskar eftir sjúkraþjálfara til starfa. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Starfshlutfall er umsemjanlegt og gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarstofnun sem veitir einstaklingum á aldrinum 18 – 67 ára áframhaldandi endurhæfingu eftir að frumendurhæfingu lýkur. Markmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga við að aðlagast breyttum aðstæðum og auka hæfni og þátttöku í daglegu lífi.
Hjá Kjarki endurhæfingu starfar þverfaglegur hópur fagfólks við endurhæfingu.
Sjúkraþjálfari sinnir almennri sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar. Sjúkraþjálfari metur og skipuleggur íhlutun í samráði við þjónustuþega og aðra starfsmenn. Sjúkraþjálfari skráir og metur árangur sjúkraþjálfunar, úthlutar verkefnum og ber faglega ábyrgð á vinnu þeirra.
- Almenn sjúkraþjálfun á öllum stigum endurhæfingar
- Mat og skipulag meðferðar
- Skráning og mat árangurs sjúkraþjálfunar
- Þátttaka í þverfaglegum teymum
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptafærni
- Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu er kostur
- Lausnamiðuð og sjálfstæði í starfi
- Heilsustyrkur
- Virkt starfsmannafélag
- Styttri vinnuvika
Íslenska


