

Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á meltingar- og nýrnadeild
Langar þig að starfa í góðum hópi þar sem samvinna, virðing og jákvæðni eru í fyrirrúmi? Við bjóðum upp á fjölbreytt og lærdómsrík störf í styðjandi starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á góðan starfsanda og faglegan stuðning.
Við óskum eftir hjúkrunarnemum til starfa í okkar góða hópi. Í boði er markviss stuðningur í starfi og tækifæri til að efla þekkingu og færni samhliða námi. Tekið er tillit til náms við skipulag vakta og er starfshlutfall og vinnufyrirkomulag samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Deildin er 19 rúma legudeild og þjónar sjúklingum með bráða og langvinna sjúkdóma í meltingarfærum og nýrum auk annarra sjúkdóma á sviði bráðra lyflækninga. Lögð er áhersla á að skapa uppbyggjandi starfsumhverfi og veita einstaklingshæfða hjúkrun.
Á deildinni starfa um 60 einstaklíngar í þverfaglegu teymi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Guðrúnu Yrsu, hjúkrunardeildarstjóra.
Íslenska









































