

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma
Legudeild geðrofssjúkdóma leitar að jákvæðu og metnaðarfullu samstarfsfólki. Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og áhersla er lögð á öfluga fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Starfið felur í sér að veita líkamlega umönnun og hjúkrun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, ferðir í ýmsa virkni og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsmanna á deild með þátttöku í varnarteymi geðsviðs. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfsmannahópnum þar sem leitast er við að nýta þekkingu og færni hvers starfsmanns í deildarstarfið.
Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Ráðið er í starfið frá 1. febrúar 2026 eða eftir samkomulagi.
Icelandic














































