

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í skólahjúkrun og heilsuvernd aldraða. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæsluhjúkrunar er víðtækt og sinnir heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ fólki á öllum aldri.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Í heilsuvernd aldraða leitast hjúkrunarfræðingur við að styðja eldra fólk til að efla og viðhalda andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Þjónustan felst í að greina áhættuþætti og veita fræðslu sem snerta heilsu og líðan. Hjúkrunarfræðingur veitir jafnframt ráðgjöf, leiðsögn og upplýsingar um þau þjónustuúrræði sem eru í boði.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Reynsla af skólahjúkrun kostur
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Icelandic
English










