
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Verkefnis- og hönnunarstjóri
Vilt þú taka þátt í að hanna og undirbúa samgöngumannvirki framtíðarinnar?
Hönnunardeild Vegagerðarinnar annast undirbúning fjölbreyttra verkefna um allt land, allt frá hugmynd að framkvæmd. Við leitum að verkefnis- og hönnunarstjórum sem hafa þekkingu og reynslu af hönnun samgöngumannvirkja og almennri verkefnisstjórn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- hönnunar- og verkefnisstjórn frumdraga, for- og verkhönnunar
- kaup á ráðgjöf og rannsóknum
- sérfræðiráðgjöf
- samstarf þvert á önnur svið, deildir og svæði Vegagerðarinnar
- gerð leiðbeininga um hönnun og undirbúning
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt.
- Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja
- Reynsla af verkefnisstjórn æskileg
- Sérhæfing eða reynsla á einhverjum af eftirfarandi sviðum æskileg:
- gerð verklýsinga
- jarðtækni
- burðarþolshönnun vega
- vegbúnaður
- umferðartækni
- umferðarhávaði
- gerð hönnunarleiðbeininga
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli kostur
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur16. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Suðurhrauni 3, 210 Garðabær
Borgarbraut 66, 310 Borgarnes
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í hagdeild
Coca-Cola á Íslandi

Yfirverkfræðingur rafveitu
Norðurál

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Byggingahönnuðir í útibú Verkís á landsbyggðinni
Verkís

Liggur áhugi þinn á sviði fjármála?
Hagvangur

Verkefnastjóri á fasteignasviði
Bláa Lónið

Verkefnastjóri tæknikerfa mannvirkja
Verkís

Sérfræðingur í greiningardeild
Vinnumálastofnun

Deildarstjóri byggingarmála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Sérfræðingur í flutningum / Logistics Specialist
Alvotech hf

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Landsbankinn

Leiðtogi starfsstöðvar COWI á Akureyri
COWI