
Landsbankinn
Hjá Landsbankanum starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíka þekkingu, reynslu og bakgrunn. Reynslan sem býr í starfsfólkinu styrkir stoðir rekstrarins á meðan fjárfesting í öflugri endurmenntun, starfsþróun og ráðning nýrra starfskrafta tryggir stöðuga framþróun.
Við erum hreyfiafl í samfélaginu og vinnum ötullega að því að rödd bankans sé sterk, traustvekjandi, að hún fylli starfsfólk stolti og efli árangursdrifna menningu.

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Við leitum að öflugum sérfræðingi í upplýsingaöryggi til að ganga til liðs við hóp sérfræðinga í rekstraráhættudeild á sviði áhættustýringar. Viðkomandi mun taka þátt í vinnu tengdri stjórnkerfi upplýsingaöryggis í bankanum ásamt almennri rekstraráhættu.
Landsbankinn leggur mikla áherslu á upplýsingaöryggi í starfsemi sinni og er vottaður samkvæmt ISO 27001.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í mótun stefnu í upplýsingaöryggismálum og eftirlit með framkvæmd hennar
- Umsjón og viðhald á stjórnkerfi upplýsingaöryggis og ISO 27001 vottunar
- Fylgjast með ytra regluverki sem snýr að upplýsingaöryggi og stuðla að því að bankinn starfi í samræmi við það
- Veita stjórnendum og starfsmönnum ráðgjöf um framkvæmd upplýsingaöryggismála
- Þátttaka í greiningu og ráðgjöf vegna rekstraráhættu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði upplýsingatækni, tölvunarfræði, viðskiptafræði eða tengdra greina
- Reynsla af upplýsingaöryggismálum og/eða öðrum stjórnkerfum (t.d. ISO 27001, ISO 9001 eða sambærilegum)
- Þekking á lögum og reglum sem varða net- og upplýsingaöryggi (t.d. DORA) er kostur
- Þekking á umgjörð gæðamála í upplýsingatækni er kostur
- Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla af teymisvinnu
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
- Þekking á fjármálamarkaði og starfsemi fjármálafyrirtækja er kostur
Auglýsing birt2. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Reykjastræti 6
Starfstegund
Hæfni
TölvunarfræðingurUmsýsla gæðakerfaVerkfræðingurViðskiptafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri (Account Manager)
Snæland Grímsson ehf

Sérfræðingur í flutningum / Logistics Specialist
Alvotech hf

Bókari
Deloitte

Ráðgjafi í þjónustuteymi
dk hugbúnaður ehf.

Nefndarmaður í yfirskattanefnd
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Leiðtogi starfsstöðvar COWI á Akureyri
COWI

Tilboðsgerð
ÍAV

Verk- eða tæknifræðingur á fagsviði lagna- og loftæsikerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Vélahönnuður
KAPP ehf

Eignastýring
Gildi

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu
Gildi

Verkefnastjóri framkvæmda
Borealis Data Center ehf.