Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Sérfræðingur í greiningardeild

Vinnumálastofnun leitar að öflugum gagnasérfræðingi til starfa hjá greiningadeild stofnunarinnar með starfstöð á Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi, meðal annars hönnun og þróun gagnagrunnskerfa, greining gagna og viðhald gagnagrunna. Starfið felur í sér náið samstarf með öðrum deildum stofnunarinnar og deildin ber ábyrgð á að tryggja gæði gagna auk þess að koma að vinnu við að setja upp skilvirka ferla og þróa nýjar tæknilausnir.

Greiningardeild ber ábyrgð á þróun og birtingu tölulegra gagna Vinnumálastofnunar ásamt því að vinna að greiningu gagna og skýrslugerð um stöðu vinnumarkaðar. Deildin ber ábyrgð á uppbyggingu gagnalausna og gerð mælaborða Vinnumálastofnunar til innri og ytri birtingar. Deildin styður einnig aðrar einingar stofnunarinnar við að geta tekið gagnadrifnar ákvarðanir.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri greiningardeildar innan þróunar- og tæknisviðs.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis verkfræði, tölvunarfræði eða hagfræði, framhaldsmenntun er kostur. 

  • Reynsla af hönnun, þróun og viðhaldi gagnagrunna. 

  • Reynsla af vinnu með stór gagnasöfn og geta til að vinna með flóknar gagnaskipanir. 

  • Greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga. 

  • Góð samskiptafærni og jákvæðni. 

  • Geta til að vinna í teymi. 

  • Góð almenn tækniþekking. 

  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum. 

  • Reynsla af hagskýrslugerð er kostur. 

  • Reynsla og þekking á vinnumarkaðsgreiningum er kostur. 

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. 

Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur20. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grensásvegur 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar