Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Deildarstjóri byggingarmála

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að öflugum leiðtoga í nýtt starf deildarstjóra byggingarmála Reykjavíkurborgar.

Deild byggingarmála ber ábyrgð á að byggingarreglugerð og öðrum lögum og reglugerðum um byggingarmál fjalla sé framfylgt. Þá annast deildin útgáfu byggingarleyfa fyrir mannvirki sem staðsett eru í Reykjavík, auk þess að veita markvissa þjónustu og hefur virkt eftirlit með að kröfur um öryggi, útlit, endingu og hagkvæmni mannvirkja sé í samræmi við lög, reglugerðir, skipulagsáætlanir og gildandi stefnur og staðla.

Við leitum að einstaklingi með ríka forystu- og samskiptahæfileika, frumkvæði og þjónustumiðaða hugsun, sem hefur áhuga á nýsköpun og vilja til að taka þátt í leiðandi hlutverki á sviði byggingarmála í Reykjavík.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri skipulags-og byggingarmála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á faglegu starfi, uppbyggingu og skipulagi deildar og að málsmeðferð og áherslur verkefna séu í samræmi við stefnu borgaryfirvalda í umhverfis- og skipulagsmálum.
  • Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð skrifstofu skipulags og byggingarmála.
  • Forsvar fyrir þjónustu, fagleg stjórnun mannauðs, fjármála, skipulags og daglegra verkefna auk ábyrgðar á rekstri.
  • Leiðandi hlutverk við þróun verkefnamiðaðrar teymisvinnu.
  • Leiðir áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu einingarinnar og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
  • Samskipti og samráð við íbúa, hagsmunaaðila, ráðgjafa og stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis.
  • Yfirumsjón með forgangsröðun verkefna og samræmingu innan deildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í arkitektúr, byggingarfræði, verkfræði, tæknifræði eða sambærilegum tæknigreinum. Viðeigandi löggilding sérfræðinga í tæknigreinum áskilin.
  • Framhaldsmenntun í fagi er áskilin.
  • Viðbótamenntun á sviði stjórnunar, verkefnastjórnunar og/eða opinberrar stjórnsýslu kostur.
  • Víðtæk reynsla af sambærilegu starfssviði.
  • Mjög góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu.
  • Hæfni til að skapa öfluga liðsheild.
  • Greiningar- og skipulagshæfni. Áhugi á breytingum og bættri þjónustu.
  • Reynsla af stjórnun og áætlanagerð ásamt þekkingu á opinberri stjórnsýslu kostur.
  • Þekking á skipulags- og byggingarlögum og viðkomandi reglugerðum.
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta og umbótamiðuð hugsun varðandi tæknilausnir.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B2-C1.
Auglýsing birt23. maí 2025
Umsóknarfrestur9. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar