
Verkís
Hjá Verkís starfa yfir 380 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.

Verkefnastjóri tæknikerfa mannvirkja
Við leitum að öflugum verkefnastjóra til að leiða hönnunarteymi tæknikerfa s.s. lagna- og loftræsikerfi í stórum verkefnum. Verkefnastjóri hönnunarteymis leiðir verkefnahóp og ber jafnframt ábyrgð á úrlausn flókinna verkefna, samræmingu við verkkaupa, skipulagningu verkefnavinnu og samvinnu við önnur teymi.
Starfið tilheyrir lagna- og loftræsikerfahópi á Byggingasviði. Verkefni sviðsins felast í hönnun flókinna mannvirkja, s.s. sjúkrahúsa, íþróttahúsa, flugstöðvabygginga, opinberra bygginga og skóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjóri tæknikerfa í flóknum mannvirkjum á Íslandi og erlendis
- Leiðir verkefnahóp og ber ábyrgð á samræmingu tæknikerfa
- Sinnir samskiptum við viðskiptivini varðandi faglega úrlausn verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í véla- eða byggingaverkfræði, eða véla- eða byggingatæknifræði
- Starfsreynsla við verkefnastjórnun
- Þekking og reynsla af hönnun tæknikerfa í mannvirkjum er kostur
- Mjög góð færni í íslensku í tali og rituðu máli
- Góðir samskiptahæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og áræðni í starfi
Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
TæknifræðingurVerkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Byggingahönnuðir í útibú Verkís á landsbyggðinni
Verkís

Verkefnis- og hönnunarstjóri
Vegagerðin

Verkefnastjóri á fasteignasviði
Bláa Lónið

Verk- eða tæknifræðingur á fagsviði vélbúnaðar
Landsvirkjun

Starfsmaður á þjónustuverkstæði
SINDRI

Verk- eða tæknifræðingur á fagsviði lagna- og loftæsikerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Verkefnastjóri framkvæmda
Borealis Data Center ehf.

Sérfræðingur – Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur í rannsóknum og gerð Rb blaða
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Starfsmaður í Garðskáladeild
Jón Bergsson

Verkefnastjóri; Úttektir, eftirlit og ráðgjöf
VERKVIST

Verkefnastjóri með skráningu fasteigna
Kópavogsbær