Overcast ehf.
Overcast ehf.
Overcast ehf.

Verkefnastjóri í hugbúnaðarþróun

Við leitum að skipulögðum og drífandi verkefnastjóra til að taka þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum hjá Overcast.

Hlutverkið snýr að því að halda utan um verkefni, tryggja gott flæði í samskiptum og styðja teymi og viðskiptavini í gegnum allt verkefnaferlið.

Verkefnastjóri gegnir lykilhlutverki í að skapa yfirsýn, forgangsraða verkefnum og tryggja að upplýsingar, verkefni og ákvarðanir séu skýrar og aðgengilegar öllum sem koma að verkefnum.

Hjá Overcast er unnið að fjölbreyttum vef- og hugbúnaðarverkefnum fyrir ólíka viðskiptavini, ásamt þróun eigin hugbúnaðarlausna. Umhverfið er hratt, fjölbreytt og krefst góðrar yfirsýnar og samskiptahæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um virk þróunarverkefni og tryggja góða yfirsýn yfir stöðu þeirra

  • Forgangsraða verkefnum í samvinnu við teymi og viðskiptavini

  • Sjá um samskipti við viðskiptavini tengd verkefnum, verkbeiðnum og framvindu

  • Tryggja að verkefni, ákvarðanir og næstu skref séu skráð og aðgengileg

  • Fylgja eftir verkefnum og tryggja framvindu þeirra

  • Skipuleggja og leiða fundi þegar við á

  • Halda utan um verkefni í Asana og tryggja að verkefni séu uppfærð og verkbeiðnum útdeilt.

  • Samræma verkefni og upplýsingaflæði milli teymis, viðskiptavina og annarra hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem:

  • er skipulagður og með góða yfirsýn

  • hefur sterka samskiptahæfni

  • er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði

  • hefur áhuga á ferlum, skipulagi og stöðugum umbótum

  • getur unnið við mörg verkefni samhliða

  • á auðvelt með að vinna með ólíkum einstaklingum og teymum

  • hefur góðan almennan tækniskilning og áhuga á hugbúnaðarþróun. 

  • er lausnamiðaður og nær að halda fókus í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.

Hæfnikröfur:

  • Að lágmarki þriggja ára reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð eða sambærilegu tækniumhverfi

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt. 

  • Reynsla af vinnu með teymum í hugbúnaðarþróun

  • Góð samskiptahæfni í töluðu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku. 

  • Góð skipulagshæfni og geta til að halda yfirsýn yfir mörg verkefni samhliða

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun

  • Þekking á Agile aðferðafræði er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórnunarkerfum á borð við Asana eða sambærilegt er kostur

Fríðindi í starfi
  • 30 daga sumarfrí
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Framúrskarandi starfsumhverfi
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Drykkir og möns á „barnum“
  • Heilsustyrkur
Auglýsing birt18. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar