

Verkefnastjóri hönnunar og ásýndar í HR
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugum og fjölhæfum hönnuði í samheldið teymi á samskiptasviði. Um er að ræða stöðu verkefnastjóra sem hefur umsjón með grafískri hönnun, ásýnd og útliti bæði innan og utan veggja HR. Viðkomandi er tengiliður í útlitstengdum málum við allar deildir og stoðsvið og ytri aðila sem koma að framleiðslu efnis.
Viðkomandi mun m.a. sinna gerð auglýsingaefnis fyrir alla miðla HR, hönnun á útliti fyrir sýningar og viðburði, gerð markaðsefnis í samstarfi við viðeigandi aðila, taka virkan þátt í kynningar- og markaðsstarfi, halda utan um allt prentað efni og vera leiðandi í ásýndarmálum háskólans bæði innan veggja hans og utan.
- Hönnun og framleiðsla á markaðsefni fyrir allar tegundir miðla
-
Hönnun á útliti og uppsetning á efni í tengslum við viðburði og sýningar
- Hönnun og uppsetning á prentefni HR, t.a.m. bæklingum og skýrslum
-
Hönnun og uppsetning merkinga í HR og umhverfi hans
-
Samskipti við prentsmiðjur, auglýsingastofur, fjölmiðla o.fl. vegna birtinga og merkinga
-
Þátttaka í hönnun á útliti fyrir vefi HR
-
Umsjón með skjámiðlum í HR
-
Uppsetning og umsjón með sniðmátum og hönnunarstöðlum
-
Virk þátttaka í markaðs- og kynningarstarfi og verkefnum samskipta
-
Menntun á sviði grafískar hönnunar, grafískrar miðlunar eða hreyfihönnunar
-
Reynsla af sambærilegu starfi í atvinnulífinu
-
Mikill kostur ef viðkomandi hefur reynslu af markaðsstarfi
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að halda utan um flókin verkefni
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
-
Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
Íslenska
Enska










