
Hér&Nú
Hér&Nú er ein af elstu og virtustu auglýsinga- og markaðsráðgjafastofum landsins. Allt frá 1990 hefur stofan haft frumkvæði í hönnun, strategískri hugsun og árangursmiðuðum auglýsingum.
Hér&Nú er hönnunardrifin auglýsingastofa. Í markaðssamskiptum opnar skapandi hönnun nýjar leiðir. Í krafti hennar mótum við frumkvæðisdrifin samskipti við viðskiptavini og vinnum þannig sameiginlega úr reynsluheimi okkar.
Samvinna sem á að vara til langs tíma hefst með greiningu og markvissri markmiðasetningu. Herferðir eru ágætar en þær eru orrustur. Stríðið um neytendur er þúsund ára stríð. 360° aðferðarfræði okkar er hægt að útskýra í löngu máli eða benda á metfjölda árangursverðlauna sem staðfestingu á því hvernig aðferðarfræðin virkar.
En við erum ekki bara auglýsingastofa. Við veitum þjónustu á borð við:
- Auglýsingar
- Almannatengsl
- Birtingar
- Nýmiðlun

Sumarstarf fyrir nemendur í LHÍ - Grafískur hönnuður (starfsnemi)
Við leitum að hæfileikaríkum og skapandi einstakling, sem stundar nám í grafískri hönnun, til að slást í hópinn yfir sumarið. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill taka sín fyrstu skref sem hönnuður á atvinnumarkaðnum og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Býrð þú yfir skapandi hugsun og hefur gott auga fyrir formi, litum og leturfræði?
Þá hlökkum við til að heyra frá þér!
Einungis er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun
- Framleiðsla
- Hugmyndavinna
Menntunar- og hæfniskröfur
Nemi í grafískri hönnun
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur21. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FigmaIllustratorInDesignMicrosoft OutlookMicrosoft WordPhotoshop
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (1)