
Hér&Nú
Hér&Nú er ein af elstu og virtustu auglýsinga- og markaðsráðgjafastofum landsins. Allt frá 1990 hefur stofan haft frumkvæði í hönnun, strategískri hugsun og árangursmiðuðum auglýsingum.
Hér&Nú er hönnunardrifin auglýsingastofa. Í markaðssamskiptum opnar skapandi hönnun nýjar leiðir. Í krafti hennar mótum við frumkvæðisdrifin samskipti við viðskiptavini og vinnum þannig sameiginlega úr reynsluheimi okkar.
Samvinna sem á að vara til langs tíma hefst með greiningu og markvissri markmiðasetningu. Herferðir eru ágætar en þær eru orrustur. Stríðið um neytendur er þúsund ára stríð. 360° aðferðarfræði okkar er hægt að útskýra í löngu máli eða benda á metfjölda árangursverðlauna sem staðfestingu á því hvernig aðferðarfræðin virkar.
En við erum ekki bara auglýsingastofa. Við veitum þjónustu á borð við:
- Auglýsingar
- Almannatengsl
- Birtingar
- Nýmiðlun

Grafískur hönnuður
Við leitum að metnaðarfullum og skapandi grafískum hönnuði til að slást í hópinn okkar. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill þróast í starfi, öðlast reynslu og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.
Góð þekking á Adobe Creative Suite, Figma og Microsoft Office er mikilvæg.
Einungis er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun
- Framleiðsla
- Hugmyndavinna
Menntunar- og hæfniskröfur
B.A. í grafískri hönnun
Auglýsing birt11. maí 2026
Umsóknarfrestur21. maí 2026
Laun (á mánuði)500.000 - 700.000 kr.
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FigmaIllustratorInDesignPhotoshop
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)