

Verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar
SSNV leitar að öflugum, framsýnum og markaðsþenkjandi verkefnisstjóra til að styðja við framþróun í atvinnu-, fjárfestinga- og markaðsmálum landshlutasamtakanna.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem tengist atvinnustarfsemi landshlutans, fjárfestingum og markaðssetningu á þeim fjölbreyttu tækifærum sem Norðurland vestra býður upp á.
Verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar leiðir fjárfestingaverkefni landshlutans og sækir fram þar sem tækifæri gefast til að kynna fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra og efla atvinnulíf landshlutans. Þá ber hann ábyrgð á markaðsmálum samtakanna.
Kortleggja, þróa og vinna markvisst að framgangi fjárfestingatækifæra á Norðurlandi vestra og kynna þau fyrir innlendum og erlendum fjárfestum.
Leiða og fylgja eftir fjárfestingaverkefnum í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki, fjárfesta og aðra hagaðila.
Veita frumkvöðlum og fyrirtækjum atvinnuráðgjöf, einkum varðandi stofnun fyrirtækja, rekstur, viðskiptaáætlanir, fjármögnun og þróun viðskiptahugmynda.
Stuðla að uppbyggingu og eflingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra, m.a. með því að greina tækifæri til nýrrar atvinnustarfsemi og styðja við þróun þeirra.
Annast markaðsmál SSNV og taka þátt í að þróa og innleiða markaðs- og samskiptastarf samtakanna.
Kynna Norðurland vestra sem ákjósanlegan stað fyrir fjárfestingar, atvinnurekstur og uppbyggingu, í samstarfi við sveitarfélög og aðra hagaðila.
Þátttaka í öðrum verkefnum SSNV á sviði atvinnu- og byggðaþróunar eftir þörfum.
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Reynsla af þeim málaflokkum er undir starfið heyra.
Þekking og reynsla af markaðssetningu er kostur.
Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga er kostur.
Framúrskarandi samskiptafærni og tölvukunnátta.
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni.
Framsýni og metnaður.
Góð rit- og talfærni á íslensku og ensku og hæfni í framsetningu upplýsinga á aðgengilegan hátt.
Íslenska
Enska










