Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Menningarhúsið Berg: verkefnastjórar

Menningarhúsið Berg auglýsir tvær tímabundnar stöður, önnur með möguleika á áframhaldandi starfi:

  • 50% tímabundin staða verkefnastjóra í afleysingu til loka árs 2026.
  • 30% staða við undirbúning og umsjón viðburða, mögulegt framtíðarstarf.

Vinnutími 50% stöðuhlutfalls skiptist annars vegar í undirbúningsvinnu á skrifstofutíma og hins vegar í viðveru og umsjón á viðburðum hússins einstaka kvöld. Vinnutími 30% stöðuhlutfalls er að mestu viðvera á viðburðum en unnið í nánu samstarfi við verkefnastjóra og hentar einstaklega vel þeim sem vilja auka vinnu kvöld og helgar eða tengja við starf á bókasafni.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning dagskrár í Bergi, auk tilfallandi viðburða á bókasafni
  • Umsjón með bókunum vegna viðburða/sýninga og samskipti við listamenn, leigjendur og viðburðahaldara
  • Hugmyndavinna, skipulagning og umsóknargerð þegar þess er þörf
  • Markaðssetning. Auglýsingagerð og samfélagsmiðar
  • Undirbúningur og frágangur fyrir viðburði og útleigu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla
  • Góð færni á markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla er mikill kostur
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð færni í íslensku í máli og riti
  • Góð færni í ensku í máli og riti er æskileg
Fríðindi í starfi

Heilsusjóður Dalvíkurbyggðar

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menningarhús og bókasafn
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar