
Verkefnastjórar á framkvæmdasviði
Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) leiða verkefnastjórar framkvæmdir sem móta aðstöðu m.a. fyrir heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, menningu og náttúruvernd um allt land. Nú leitum við að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjórum í öflugan hóp á framkvæmdasviði. Verkefnin eru af ólíkri stærð og flækjustigi, og ábyrgð og umfang taka mið af reynslu hvers og eins. Því eiga bæði verkefnastjórar sem eru að byggja upp reynslu sína og reyndir verkefnastjórar erindi í hópinn.
Sem verkefnastjóri leiðir þú fjölbreytt verkefni frá hönnun til afhendingar mannvirkja, allt frá nýbyggingum og endurbótum á húsnæði ríkisins til uppbyggingar ofanflóðavarna og náttúruinnviða. Meðal stærri verkefna sviðsins um þessar mundir eru nýtt öryggisfangelsi, verknámshús Fjölbrautaskólans í Breiðholti og ný hjúkrunarheimili að Ási, við Nauthólsveg og á Húsavík.
-
Verkefnastjórn í mannvirkjagerð á stigi hönnunar og/eða framkvæmda, með fjárhagslega og stjórnunarlega ábyrgð verkefna
-
Gerð þarfa- og kostnaðargreininga og kostnaðar- og tímaáætlana
-
Umsjón með útboðsferli framkvæmdaverkefna
-
Mat á viðhalds- og endurbótaþörf fasteigna í samráði við önnur svið FSRE
-
Þátttaka í þróun lausna í samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunarinnar
-
Þátttaka í framþróun verkefnastjórnunar, sem og annarra umbótaverkefna
-
Yfirferð og samþykkt reikninga
-
Samskipti við verktaka, hönnuði, birgja og notendur vegna framkvæmda og hönnunar
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Menntun, vottun eða reynsla í verkefnastjórn
-
Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og rík hæfni í teymisvinnu
-
Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð, þjónustumiðuð vinnubrögð
-
Geta til að vinna undir álagi og halda utan um mörg verkefni samtímis
-
Góð tök á Microsoft 365 (t.d. Word, Excel og PowerPoint)
-
Góð tök á Microsoft Project
-
Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Eftirfarandi telst til kosta
-
Menntun á sviði mannvirkjagerðar (t.d. verk-, tækni-, byggingafræði eða arkitektúr)
-
Reynsla af hönnun og/eða verklegum framkvæmdum
-
Þekking á upplýsingalíkönum (BIM)
-
Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu
-
Þekking á stafrænni þróun
Hvað við bjóðum
-
Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma
-
Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins
-
Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet
-
Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu
Íslenska
Enska









