Söluskrifstofa Keahótela
Söluskrifstofa Keahótela
Söluskrifstofa Keahótela

Tæknilegur verkefnastjóri

Staðsetning: Reykjavík

Um Keahótel

Keahótel ehf er meðal stærstu hótelfyrirtækja landsins og rekur tíu hótel: Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Grímsborgir og Hótel Kötlu í Vík í Mýrdal.

Hjá Keahótelum starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn og sameiginlega áherslu á gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni og frumkvæði. Markmiðið er að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og ánægða viðskiptavini.

Keahótel er í stöðugri sókn og leggur ríka áherslu á að tæknilausnir okkar, þar á meðal vefurinn, bókunarflæðið og sölutengd kerfi, styðji vel við frábæra upplifun gesta og skilvirkan rekstur. Nú leitum við að tæknilegum verkefnastjóra sem hefur gaman af því að koma hlutum í framkvæmd.

Um starfið

Tæknilegur verkefnastjóri starfar beint undir framkvæmdastjóra sölu og markaðsmála og ber ábyrgð á tæknikerfum sem snúa að upplifun gesta. Þar má helst nefna vefsíðu og bókunarvél Keahótela, hótelbókunarkerfi, samskiptakerfi og önnur kerfi sem snerta viðskiptavini félagsins. Starfið felur í sér að leiða innleiðingu nýrra tæknilausna og ferla, bæta núverandi ferla, stýra breytingum á þessum kerfum og halda vel utan um þau kerfi og lausnir sem þegar eru til staðar. Verkefnastjóri vinnur þétt með öðrum deildum fyrirtækisins og er tengiliðurinn sem tryggir að tæknin þjóni fólkinu sem notar hana.

Starfið kallar á gott tæknivit, forvitni og kjark til að setja sig inn í flókin kerfi. Mikilvægt er að viðkomandi sé drífandi, dugleg/ur og fylgi hlutum eftir.

Þetta er fjölbreytt og krefjandi starf í vaxandi fyrirtæki og gott tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á tæknilausnir sem snerta alla gesti Keahótela.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bera ábyrgð á tæknikerfum sem snúa að upplifun gesta, svo sem vefsíðu, bókunarvél, hótelbókunarkerfi og samskiptakerfum. 
  • Leiða innleiðingu nýrra tæknilausna og ferla. 

  • Viðhalda og bæta þau kerfi og lausnir sem þegar eru til staðar. 

  • Stýra breytingaverkefnum frá hugmynd til framkvæmdar og fylgja þeim eftir. 

  • Vinna með öðrum deildum og veita þeim stuðning við úrlausn verkefna. 

  • Vera tengiliður við tæknilega birgja og þjónustuaðila. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði viðskiptafræði, verkefnastjórnunar eða tölvunarfræði er kostur. 
  • Reynsla af verkefnastjórnun tæknilegra verkefna. 

  • Gott tæknivit og skilningur á því hvernig vefkerfi og kerfatengingar virka. 

  • Drífandi, skipulögð/laður og með gott frumkvæði. 

  • Auðvelt með samskipti, jafnt við tæknifólk sem aðrar deildir. 

  • Reynsla úr ferðaþjónustu eða tæknitengdri starfsemi er kostur en ekki krafa. 

Umsóknir 

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. 

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Hafstað, [email protected]

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 26, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar