Landskerfi bókasafna hf.
Landskerfi bókasafna hf.

Verkefnastjóri

Viltu leiða verkefni sem móta framtíð íslenskra safna?

Landskerfi bókasafna gegnir lykilhlutverki í þróun, rekstri og þjónustu sameiginlegra upplýsingakerfa fyrir íslensk bókasöfn og önnur menningar- og minjasöfn. Í nánu samstarfi við söfn um land allt vinnur félagið að þróun öflugra stafrænna lausna sem styðja við miðlun þekkingar, aðgengi að upplýsingum og framúrskarandi þjónustu til almannaheilla.

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til að leiða fjölbreytt verkefni í samstarfi við sérfræðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Sem verkefnastjóri verður þú lykilaðili í þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við áframhaldandi þróun Landskerfa bókasafna og þeirra safna sem félagið þjónustar.
Starfið felst meðal annars í að koma verkefnum af stað, skilgreina umfang þeirra, gera raunhæfar áætlanir og tryggja markvissa eftirfylgni. Verkefnastjóri leiðir saman rétta sérfræðinga hverju sinni, styður þá í verkefnavinnunni og stuðlar að góðu samstarfi og sameiginlegri sýn á markmið og niðurstöður.

Helstu verkefni

  • Leiða verkefni og tryggja markvissa eftirfylgni.
  • Skilgreina umfang, markmið, afurðir og árangursviðmið verkefna.
  • Vinna raunhæfar áætlanir.
  • Átta sig á hvar nauðsynleg þekking liggur og leiða saman rétta sérfræðinga hverju sinni.
  • Virkja og styðja sérfræðinga og aðra þátttakendur í verkefnavinnunni.
  • Greina áhættu og tengsl milli verkefna og bregðast við frávikum.
  • Tryggja reglulega upplýsingagjöf um framvindu og niðurstöður verkefna.
  • Vinna náið með viðskiptavinum og öðrum hagsmunaaðilum.
  • Taka þátt í innleiðingu breytinga, nýrra kerfa og þróun verkferla.
  • Önnur verkefni samkvæmt samkomulagi við næsta yfirmann.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði bókasafns- og upplýsingafræði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, greiningu og þróun vinnuferla.
  • Hæfni og áhugi á að virkja fólk og leiða þverfaglegt samstarf.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og drifkraftur.
  • Áhugi á umbótum, nýsköpun og stafrænni þróun.
  • Vilji og geta til að setja sig inn í sérhæfð kerfi og starfsumhverfi.
  • Þekking á Gegni eða starfsumhverfi bókasafna er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð almenn upplýsingatækniþekking.
  • Menntun eða vottun í verkefnastjórnun er kostur.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf með raunveruleg áhrif á þróun þjónustu við íslensk söfn.
  • Tækifæri til að leiða verkefni sem styðja við miðlun þekkingar og aðgengi að upplýsingum.
  • Öflugt samstarfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, þverfaglega samvinnu og nýsköpun.
  • Tækifæri til starfsþróunar og þátttöku í spennandi þróunarverkefnum.

Um Landskerfi bókasafna

Landskerfi bókasafna er hlutafélag í eigu ríkis og sveitarfélaga. Tilgangur þess er að reka upplýsinga- og skráningarkerfi fyrir bókasöfn og eftir atvikum önnur söfn á Íslandi og veita þeim tengda sérfræðiþjónustu. Félagið sér um daglegan rekstur Rekstrarfélags Sarps, sem á menningarsögulega gagnasafnið Sarp.

Landskerfi bókasafna rekur Gegni, sem er bókasafnskerfi á landsvísu, leitargáttina Leitir, raf- og hljóðbókaveituna Rafbókasafnið og menningarsögulega gagnasafnið Sarp, auk tengdra sérlausna. Gegnir og Leitir byggja á skýjalausnunum Alma og Primo frá Ex Libris, hluta Clarivate, en Sarpur á MuseumPlus frá Zetcom.

Viðskiptavinir Landskerfa bókasafna eru að stærstum hluta opinberir aðilar. Félagið þjónustar um 300 bókasöfn og 60 minja- og listasöfn. Starfsmenn félagsins eru níu talsins. Nánari upplýsingar má finna á landskerfi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]).

Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar