Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð
Dalvíkurbyggð

Bókasafn: bókaverðir

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa bæði á Bókasafni Dalvíkurbyggðar og í Menningarhúsinu Berg.

Menningarhúsið Berg er lifandi menningarmiðstöð í hjarta Dalvíkur þar sem eru bókasafn, fjölnota salur og veitingarekstur. Þar fer fram fjölbreytt starfsemi, meðal annars tónleikar, sýningar, ráðstefnur, fundir, námskeið, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir.

Bókasafn Dalvíkurbyggðar: bókaverðir

Tvö störf í 40% stöðuhlutfalli bókavarðar. Möguleiki er á að skoða önnur starfshlutföll eftir samkomulagi.

Störfin eru unnið á opnunartíma bókasafnsins (11:00–17:00). Starfsmenn vinna fjóra virka daga í viku á rúllandi vöktum sem skiptast vikulega milli fyrri og seinni vakta. Umsækjendur þurfa að geta unnið til kl.17:00 á daginn og einstaka laugardagsvaktir frá kl. 13:00–16:00 sem eru til viðbótar við starfshlutfall. Möguleiki er að tengja saman starf á bókasafni við auglýstar stöður í Menningarhúsinu Bergi.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður Safna og Menningarhússins Bergs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og ráðgjöf við gesti
  • Útlán, skil og frágangur safnkosts
  • Umsjón með samfélagsmiðlum og miðlun upplýsinga á vef
  • Skráning, flokkun og uppsetning bóka og annars safnkosts
  • Aðstoð við skipulagningu og framkvæmd viðburða, kynninga og fræðslustarfs
  • Kynning á þjónustu bókasafnsins og þátttaka í þróun og eflingu starfseminnar
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri bókasafnsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góða kunnáttu og færni á samfélagsmiðlum og eiga auðvelt með að tileinka sér ný forrit
  • Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og hafa ríka þjónustulund
  • Hafa góða skipulagsfærni, vinna sjálfstætt, lausnamiðað og eiga auðvelt með samstarf
  • Hafa góða færni í íslensku í máli og riti
  • Hafa góða færni í ensku í máli og riti
  • Reynsla af bókasafnsstörfum er kostur en ekki skilyrði
Fríðindi í starfi

Heilsusjóður Dalvíkurbyggðar

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menningarhús og bókasafn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar