Garri
Garri
Garri

Starfsmaður í afgreiðslu í vöruhúsi Garra

Viltu verða hluti af frábæru teymi?

Við leitum að öflugum og jákvæðum einstaklingi til starfa í afgreiðslu í vöruhúsi Garra sem nýtur þess að vera í fjölbreyttum verkefnum, býr yfir metnaði til að veita framúrskarandi þjónustu og hefur góða skipulagshæfni.

Hjá okkur færðu tækifæri til að tileinka þér nýja færni og starfa í skemmtilegu og stuðningsríku umhverfi þar sem heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru höfð að leiðarljósi.

Vinnutími er frá kl. 07 - 16 og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Um framtíðarstarf er að ræða og er aldurstakmark 20 ára.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og taka vel á móti viðskiptavinum og gestum sem koma í vöruafgreiðslu Garra
  • Afgreiðsla og bókun reikninga
  • Svara tölvupóstum og símtölum- leysa úr þeim málum sem á borða berast
  • Öflugt samstarf við aðrar deildir innanhúss og bílstjóra Garra
  • Vakta pantanir í Dynamics Ax og tryggja afhendingar innan tímamarka
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund, jákvæð framkoma og lausnamiðuð hugsun
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulags- og aðlögunarhæfni
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af vörum Garra
  • Íþrótta- og sálfræðistyrkur
  • Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf
  • Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat
  • Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag
Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar