Alva Capital ehf.
Alva Capital ehf.

Verkefnastjóri framkvæmda

ALVA Capital leitar að öflugum verkefnastjóra til að stýra framkvæmdaverkefnum innan ört vaxandi eignasafns félagsins á sviði fasteignaþróunar.

Félagið hefur byggt upp fjölbreytt safn hótel- og annarra fasteigna í Reykjavík og fram undan eru meðal annars Valhöll og fleiri þróunarverkefni.

Viðkomandi ber ábyrgð á verkefnastýringu, verkbókhaldi, innkaupum og kostnaðareftirliti framkvæmda og verður lykilaðili í að móta og bæta skipulag framkvæmdaverkefna innan félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring, rekstur og yfirumsjón með framkvæmdaverkefnum

  • Gerð og eftirfylgni tíma-, kostnaðar- og greiðsluáætlana

  • Verkbókhald, yfirferð verktakareikninga og samanburður framvindu við áætlanir

  • Kostnaðareftirlit, uppgjör verkefna og skýrslugjöf um framvindu og frávik

  • Innkaup á efni og þjónustu og yfirumsjón með verðfyrirspurnum og útboðum

  • Umsjón með samskiptum við hönnuði, verktaka og aðra hagaðila

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða önnur sambærileg menntun

  • Reynsla af verkefnastjórnun verklegra framkvæmda

  • Reynsla af verkbókhaldi og kostnaðareftirliti

  • Geta til að lesa teikningar og vinna kostnaðaráætlanir út frá þeim

  • Framúrskarandi samskipta-, skipulags- og leiðtogahæfni

  • Sjálfstæð, nákvæm og lausnamiðuð vinnubrögð

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar