

Markaðsstjóri
Bókaveitan leitar að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi til að leiða markaðsstarf fyrirtækisins og taka þátt í að byggja upp frá grunni leiðandi sölu- og áskriftarþjónustu fyrir hljóðbækur og rafbækur á Íslandi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á markaðsstarfi, tækni og sögum og nýtur þess að vinna í hröðu og skapandi umhverfi.
Starfið er tækifæri fyrir markaðssérfræðing sem hefur áhuga á að sameina stefnumótun, sköpun og gagnadrifna nálgun til að byggja upp sterkt vörumerki og efla bóklestur.
Markaðsstjórinn gegnir lykilhlutverki í að móta hvernig fólk uppgötvar, nýtir og tengist bókum á nýjan hátt í stafrænu umhverfi.
- Þróa og fylgja eftir markaðsherferðum sem styrkja vörumerki Bókaveitunnar, styðja við fjölgun notenda og auka bóklestur
- Stýra stafrænu markaðsstarfi, samfélagsmiðlum, samstarfi við áhrifavalda og öðrum markaðsverkefnum
- Nýta sterka nálgun í efnismarkaðssetningu (content marketing) til að byggja upp tengsl við notendur og auka virði vörumerkisins og bókmenningar
- Vinna náið með ritstjórn, efnisstjóra, vöruþróun og öðru samstarfsfólki til að skapa árangursríkar herferðir og góða notendaupplifun
- Nýta gögn og greina viðskiptaupplýsingar til að hámarka árangur
- Stýra markaðsáætlunum, fylgjast með árangri og meta arðsemi markaðsstarfs
- Taka þátt í stefnumótun en jafnframt bera ábyrgð á framkvæmd verkefna frá hugmynd að árangri
- Háskólamenntun í markaðsfræði, samskiptum eða sambærileg menntun – eða sambærileg starfsreynsla
- Haldbær reynsla af skipulagningu og framkvæmd á stafrænu markaðsstarfi og stjórnun hefðbundinna markaðsherferða á mismunandi miðlum
- Hæfni til gagnadrifinnar greiningar og nýtingar gagna til ákvarðanatöku
- Áhugi á bókum, menningu og framtíð bókmenningar
- Geta til að vinna bæði á stefnumótandi hátt og sjálfstætt í daglegri framkvæmd verkefna
- Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Reynsla af notkun hönnunartóla eins og Canva, Figma eða Adobe er kostur
Bókaveitan er ný íslensk streymisþjónusta fyrir rafbækur og hljóðbækur sem hefur það að markmiði að móta framtíð þess hvernig fólk nýtur bóka í sátt við rétthafa.
Við höfum ástríðu fyrir bókum og bókmenningu og viljum gera frábærar sögur aðgengilegri fyrir fleiri. Með það að vopni hyggjumst við byggja upp þjónustu sem tengir fólk við bækur á fjölbreyttan og notendavænan hátt. Við leggjum áherslu á náið og sanngjarnt samstarf við höfunda, útgefendur og aðra rétthafa og viljum skapa þjónustu sem styður við bókmenningu til framtíðar.
Hjá Bókaveitunni færð þú tækifæri til að taka þátt í að móta framtíð lesturs og hlustunar á bækur og hlaðvörp á Íslandi. Þú munt vinna með öflugu fólki á sviði
markaðsmála, útgáfu, tækni og efnisöflunar að því að byggja upp þjónustu sem tengir fólk við frábærar sögur á hverjum degi.
Við leggjum áherslu á vinalegt og skapandi starfsumhverfi þar sem tækifæri gefast til að prófa nýjar leiðir, gera tilraunir og hafa raunveruleg áhrif. Við byggjum á trausti, einföldu og opnu skipulagi og viljum gefa fólki tækifæri til að vaxa og þróast með fyrirtækinu.
Íslenska
Enska

