

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Datera leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi mun fá tækifæri til að vinna með mörgum af fremstu fyrirtækjum landsins og sinna krefjandi verkefnum í skapandi og lifandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af stafrænni markaðssetningu og er tilbúinn að tileinka sér þekkingu á árangursríkum stafrænum auglýsingaherferðum.
-
Umsjón og stýring á herferðum á helstu stafrænu miðlum (Meta, Google, TikTok, Reddit o.fl.).
-
Stefnumótandi vinna við efnis- og upplýsingabestun (SEO og GEO).
-
Greining gagna, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til viðskiptavina á skýran hátt.
-
Dagleg samskipti og ráðgjöf sem hjálpar viðskiptavinum okkar að vaxa.
-
Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun.
-
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Haldbær reynsla af stafrænum auglýsingakerfum (sérstaklega Meta og Google).
-
Góður skilningur á því hvernig stafrænar herferðir tengjast raunverulegum viðskiptamarkmiðum.
-
Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð þar sem frumkvæði ræður ríkjum.
-
Geta til að halda utan um stærri verkefni og byggja upp traust hjá viðskiptavinum.
-
Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, efnis- og upplýsingabestun og sérhæfðri birtingaráðgjöf. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.
-
-
Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur
-
Greiddur hádegismatur þrjá daga vikunnar
-
Ávextir, snarl og frískandi drykkir alla daga
-
Virkt fræðslustarf og heilsustefna
-
Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
-
Öflugt félagslíf
-
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og boðað til viðtala á meðan á umsóknarferlinu stendur.
Íslenska
Enska






