
Markaðs- og efnissérfræðingur
Viltu taka þátt í að byggja upp eitt hraðast vaxandi sprotafyrirtæki landsins?
Hjá Humble vinnum við að því að draga úr matarsóun með því að tengja neytendur við veitingastaði, bakarí, matvöruverslanir og aðra samstarfsaðila sem vilja selja gæðavörur sem annars gætu farið til spillis.
Við leitum að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á markaðsmálum, efnissköpun og samfélagsmiðlum. Þetta er fjölbreytt starf þar sem þú vinnur náið með stofnendum fyrirtækisins og hefur raunveruleg áhrif á hvernig Humble vex og þróast.
Starfið
Sem markaðs- og efnissérfræðingur verður þú í lykilhlutverki við að styrkja vörumerki Humble og styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins. Þú munt vinna bæði að markaðssetningu Humble og samstarfsaðila okkar, skapa efni sem vekur athygli og byggja upp sterk tengsl við fyrirtækin sem nota lausnir okkar.
Helstu verkefni verða meðal annars að:
- Skapa efni fyrir samfélagsmiðla, vef, tölvupósta og greiddar auglýsingaherferðir.
- Skipuleggja og keyra stafrænar markaðsherferðir, þar á meðal Meta Ads.
- Heimsækja samstarfsaðila, þróa markaðsverkefni með þeim og byggja upp góð tengsl.
- Taka þátt í skipulagningu herferða, viðburða og annarra verkefna sem styðja við vöxt Humble.
Hverjum erum við að leita að?
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á markaðsmálum og efnissköpun, vinnur sjálfstætt og hefur gaman af því að vinna með fólki. Þú þarft að geta tekið frumkvæði, komið með hugmyndir og fylgt þeim eftir.
Það er kostur ef þú hefur:
- Reynslu af efnissköpun, myndbandsvinnslu og samfélagsmiðlum.
- Þekkingu á Canva, CapCut eða sambærilegum verkfærum og reynslu af Meta Ads.
- Góða samskiptahæfni og átt auðvelt með að byggja upp traust og góð tengsl.
- Góða íslensku- og enskukunnáttu. Þekking á íslensku veitinga- eða verslunarumhverfi er kostur.
- Bílpróf
Hvað bjóðum við?
Hjá Humble færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á fyrirtæki sem er í miklum vexti. Þú vinnur náið með stofnendum, færð mikið sjálfstæði og tækifæri til að þróa bæði starf þitt og hugmyndir.
Við bjóðum meðal annars upp á:
- Fjölbreytt og skapandi starf með mikla ábyrgð.
- Náið samstarf við stofnendur og stuttar boðleiðir.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda.
- Tækifæri til að vaxa í starfi samhliða vexti Humble.
Um Humble
Humble er íslenskt tæknifyrirtæki sem vinnur að því að draga úr matarsóun með því að tengja neytendur við fyrirtæki sem eiga gæðavörur umfram eftirspurn. Með Humble geta fyrirtæki aukið tekjur, minnkað sóun og náð til nýrra viðskiptavina, á meðan neytendur fá frábærar vörur á hagstæðu verði.
Í dag eru yfir 42.000 notendur og 130 samstarfsaðilar hluti af Humble og fyrirtækið er nú að undirbúa næsta vaxtarskref, bæði á Íslandi og erlendis.
Umsókn
Sendu okkur ferilskrá ásamt stuttri kynningu á þér og hlekkjum á samfélagsmiðla, verkefni eða öðru efni sem sýnir hvað þú hefur skapað.
Við hvetjum öll sem telja sig geta haft jákvæð áhrif á Humble til að sækja um, jafnvel þótt þau uppfylli ekki öll atriði starfslýsingarinnar.
Enska
Íslenska








