Reykjavík - Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara
Reykjavík - Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara
Reykjavík - Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara

Viðburðarfulltrúi

Auglýst er til umsóknar starf viðburðarfulltrúa á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Viðburðafulltrúi hefur umsjón með opinberum móttökum í Ráðhúsi og Höfða fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara ásamt því að sjá um móttökur og aðra viðburði skrifstofunnar.

Skrifstofan þjónustar embætti borgarstjóra og borgarritara, undirbýr samræmda stefnumörkun Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á samhæfðri stefnumörkun í samskipta- og upplýsingamálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stefnumótun og gerð verklags varðandi móttökur og aðra opinbera viðburði skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Tengiliður vegna viðburða í Ráðhúsi
  • Þátttaka í stefnumótun varðandi notkun á Höfða
  • Innleiðing og eftirfylgni á verklagi varðandi móttökur og aðra viðburði á vegum skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Ábyrgð á undirbúningi, mönnun viðburða og framkvæmd móttaka á vegum Reykjavíkurborgar
  • Heldur utan um sýningar og menningarviðburði í Höfða í samvinnu við hlutaðeigandi aðila
  • Er til ráðgjafar varðandi viðburði, móttökur og gestaheimsóknir á sviðum borgarinnar
  • Samþykkt reikninga vegna móttaka, viðburða, gjafakaupa og fl.
  • Situr í Viðburðastjórn Ráðhúss Reykjavíkur
  • Þátttaka í samstarfi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
  • Önnur verkefni fyrir skrifstofu borgarstjóra og borgarritara samkvæmt ákvörðun yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á siðareglum og móttöku opinberra gesta (protocol) æskileg
  • Reynsla af viðburðastjórnun æskileg
  • Reynsla af sambærilegum störfum á vegum hins opinbera eða hjá stærri fyrirtækjum/stofnunum æskileg
  • Fagmennska, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi skilyrði
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og framkomu
  • Íslenskukunnátta C2 og enskukunnátta C1 skv. evrópska tungumálarammanum
Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar