
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Starf í lögfræðiinnheimtu á innheimtu- og skráasviði
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur í lögfræðiinnheimtu í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Í lögfræðiinnheimtudeild fer fram vanskilainnheimta og gerð greiðsluáætlana vegna vanskila á sköttum og gjöldum. Deildin er hluti af innheimtu- og skráasviði Skattsins.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf varðandi stöðu mála í síma og tölvupósti ásamt móttöku gjaldenda í afgreiðslu Skattsins í Katrínartúni
- Gerð greiðsluáætlana í samræmi við gildandi verklag
- Samskipti við gjaldendur vegna aðfarargerða, nauðungarsölu og gjaldþrota
- Samskipti við sýslumenn og dómstóla vegna afturkallana og frestana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, eða annað sambærilegt nám, starfsþjálfun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
- Fáguð framkoma, jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur

Þjónustufulltrúi í verslun
Fastus

Þjónustufulltrúi - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Leitum að framúrskarandi móttöku- og þjónustufulltrúa hjá Hjartavernd
Hjartavernd

Front Desk Agent – Full-Time, Long-Term Position
Hótel Vík í Myrdal

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Hamraborg
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Viðburðarfulltrúi
Reykjavík - Skrifstofa borgarstjóra og borgarritara

Móttökustjóri á 101 hotel reykjavik
101 hotel

TDK Foil leitar eftir starfsmanni í móttöku fyrirtækisins á Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

Bókhalds og skrifstofustarf.
Nautafélagið ehf.