

Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið. Ráðið er í stöðuna frá 25. ágúst 2025
Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
- Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla í tómstundarmálum
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Íslenskukunnátta
- Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
- Almenn tölvukunnátta
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































