

Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar auglýsir eftir póskumælandi ráðgjafa í menningarmiðlun (brúarsmið) Um er að ræða 50-100% stöðu tímabundið í hálft ár, ráðið er í stöðuna frá 5. ágúst 2025.
Á skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs hjá Hafnarfjarðarbæ starfar fagfólk úr ýmsum fagstéttum að veitingu þjónustu til leik- og grunnskóla, dagforeldra, frístundaheimila og tónlistarskóla auk þess að annast stjórnsýslumálefni þeirra hjá sveitarfélaginu.
Markmið starfsins er að fræða og veita stuðning og ráðgjöf við foreldra og kennara vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í grunnskóla. Starfið fer að miklu leyti fram á vettvangi skóla og íþrótta- og frístundastarfs. Vinnustöð starfsmanns er að Strandgötu 41. Starfið er á vegum mennta- og lýðheilsusviðs og heyrir undir íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita foreldrum af erlendum uppruna ráðgjöf varðandi grunnskólastarf og fræða um hlutverk foreldra í skólastarfi
- Að styðja foreldra af erlendum uppruna í samskiptum við grunnskóla
- Að fræða starfsfólk í grunnskólum um ólíka menningu og tungumál í fjölmenningarlegu skólasamfélagi
- Að hvetja og aðstoða börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til þátttöku í frístundastarfi
- Að fræða börn og fjölskyldur þeirra um mikilvægi þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og aðstoða við þátttöku barnanna
- Að hafa yfirsýn yfir framboð íþrótta- og tómstunda og geta leiðbeint foreldrum varðandi skráningar og nýtingu frístundastyrks
- Að skipuleggja og búa til verkefni sem hafa það að markmiði að draga úr félagslegri einangrun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og styðja við virka þátttöku þeirra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA/BS/B.Ed. gráða í mennta- eða félagsvísindum
- Reynsla og þekking á grunnskólastarfi
- Reynsla af starfi með börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og færni í samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð kunnátta í pólsku
- Almenn tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Geir Bjarnason, frístunda- og tómstundafulltrúi í gegnum netfangið [email protected] eða í síma: 6645754.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.









































