Ás dvalar og hjúkrunarheimili
Ás dvalar og hjúkrunarheimili
Ás dvalar og hjúkrunarheimili

Tómstundafræðingur og/eða aðstoðarmaður í iðjuþjálfun

Ás dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði leitar að duglegum og hressum starfsmanni í iðju- og félagsstarf.

Ás er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns. Starfið er fjölbreytt og mikið lagt uppúr góðum starfsanda, sterkri liðsheild og hvetjandi starfsumhverfis.


Grundarheimilin hafa Eden hugmyndafræðina að leiðarljósi þar sem áhersla er lögð á nánd, samveru, stuðning og gleði.


Grundarheimilin fengu jafnlaunavottun árið 2020 og hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Um er að ræða dagvinnu og starfshlutfall er samkomulagsatriði.


Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttafélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.


Starfið er tilvalið fyrir nema í iðjuþjálfun, tómstundafræði, félagsvísindum, útskrifaða tómstundafræðinga og áhugafólk um iðju og félagsstarf.


Menntunar- og hæfnikröfur:
• BA-próf eða sambærilegt próf í tómstunda- og félagsmálafræði
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð íslenskukunnátta


Vellíðan, virðing og vinátta er höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.


Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Fanney Björg Karlsdóttir, deildarstjóri iðjuþjálfunar
[email protected]

Við hlökkum til að heyra frá þér !

Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur13. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Hverahlíð 20-22, 810 Hveragerði
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar