

Deildarstjórar forvarna- og frístundamála grunnskóla
Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða í stöður deildarstjóra forvarna- og frístundamála grunnskóla. Um er að ræða ótímabundin störf í 80-100% starfshlutfalli. Unnið er í dagvinnu með vinnuskyldu utan dagvinnumarka. Kostur er að viðkomandi geti hafið störf 1. september næstkomandi eða samkvæmt samkomulagi.
Deildarstjóri leiðir þróun forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs í skólanum, veitir því faglega forystu, skipuleggur daglegt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf og stuðlar að framförum, árangri, velferð og vellíðan barna og unglinga. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Deildarstjóri hefur yfirumsjón með málaflokknum innan skóla og starfar í teymi frístundafulltrúa og félagsmiðstöðvafulltrúa við framgang og framkvæmd verkefna þar innan.
Auglýsingu fyrir hvern skóla má finna hér;
Oddeyrarskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36240
Glerárskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36239
Giljaskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36238
Brekkuskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36237
Síðuskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36236
Naustaskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36235
Lundarskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36233
- Ber ábyrgð á starfsemi frístundar fyrir 1. - 4. bekk og skipuleggur störf starfsfólks frístundar í samstarfi við frístundafulltrúa.
- Ber ábyrgð á starfsemi félagsmiðstöðva skólans, annars vegar fyrir 5. - 7. bekk og hins vegar fyrir 8. - 10. bekk og skipuleggur starfið í samstarfi við félagsmiðstöðvafulltrúa.
- Hefur yfirumsjón með framkvæmd forvarnarmála innan stofnunar.
- Mótar og kemur til framkvæmdar starfsáætlun frístundar og félagsmiðstöðva.
- Sinnir daglegu starfi í frístund og félagsmiðstöð eftir því sem við á.
- Vinnur með börnum og unglingum að félagsfærni, jákvæðum samskiptum og sjálfstyrkingu, hvort sem er með einstaklingum eða hópum í samstarfi við frístunda- og félagsmiðstöðvafulltrúa.
- Veitir forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi í skólanum eftirfylgni og hefur forystu um þróun og umbætur á því sviði.
- Starfar með stoðteymi skóla að inngripum sem styðja við félags- og samskiptafærni með einstaklingum og hópum.
- Vinnur með fræðsluyfirvöldum í sveitarfélaginu, verkefnastjóra málefna barna- og unglinga og öðrum deildarstjórum málaflokksins um stefnumótun og ákvarðanatöku.
- Heldur utan um og stuðlar að samstarfi og teymisvinnu milli frístundar og félagsmiðstöðva innan síns skóla og milli skóla.
- Skipuleggur og stýrir teymisfundum í frístund og félagsmiðstöð.
- Tekur þátt í undirbúningi á fjárhagsáætlun skólans m.t.t. málaflokksins.
- Gætir að því að innkaup og mönnun málaflokksins falli innan fjárhagsramma.
- Tekur þátt í ráðningum starfsfólks frístundar og félagsmiðstöðvar
- Tryggir samstarf um verkefni og að veitt þjónusta sé í samræmi við markmið.
- Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegt (BA/BS/B.Ed).
- Viðbótarnám/diplóma á háskólastigi kostur.
- Nýleg og farsæl reynsla af vinnu með ungu fólki.
- Nýleg og farsæl reynsla af starfi við forvarnir og fræðslu.
- Nýleg og farsæl reynsla af frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
- Þekking á þróun, straumum og stefnum í forvarnarmálum, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
- Þekking á lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem um starfsemina gildir og hæfni til að leiða forvarna- og frístundastarf í samræmi við markmið og ákvæði laga.
- Reynsla af teymisstjórnun er æskileg.
- Hæfni til að leiða umbótamiðað forvarnastarf.
- Þekking og hæfni til að standa vörð um og stuðla að farsæld barna og unglinga.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Framtakssemi, frumkvæði og samskiptafærni.
- Vilji til þróunar og nýsköpunar.
- Metnaður til árangurs.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.Góð enskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.













