Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri í einhverfudeild - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan þroskaþjálfa í stöðu verkefnastjóra í einhverfudeild Hraunvallaskóla.

Viðkomandi mun leiða og taka þátt í að byggja upp og þróa úrræði fyrir nemendur í 1.–10. bekk í Hafnarfirði. Um er að ræða 100% starf sem skiptist í 50% verkefnastjórn og 50% þjálfun.

Um er að ræða nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöðin er skipuð sex til átta starfsmönnum. Verkefnastjóri ber ábyrgð á almennu skipulagi deildar og stýrir daglegu starfi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri stoðþjónustu í Hraunvallaskóla.

Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin mun vinna út frá styrkleikum barnanna og leggja áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.

Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi að hafa góða leiðtogahæfileika, þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla sýn á starfið í deildinni.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með starfi og skipulagi deildar.
  • Verkefnastjórnun, skipulag og umsjón með verkefnum sem tengjast daglegu starfi, ráðgjöf, greiningu og meðferð einstaklinga.
  • Vinna með styrkleika og áskoranir nemenda í samvinnu við starfsfólk, foreldra, stoðþjónustu og önnur úrræði eftir því sem við á.
  • Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra.
  • Að efla félags- og jafningjafærni nemenda.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
  • Jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og góð samskiptahæfni
  • Leiðtogahæfileikar og metnaðarfull skólasýn
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta

Umsókn fylgi yfirlit yfir nám, fyrri störf og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri. [email protected] og Anna Rut Pálmadóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, [email protected] eða í síma 590-2800.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt6. júní 2025
Umsóknarfrestur19. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (30)
Hafnarfjarðarbær
Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Spænskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Skarðshlíðarskóli – Skarðið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístund einhverfudeildar Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur á athvarfið Læk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forvarnarfulltrúi - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnsögumaður/skipstjóri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari/þroskaþjálfi - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar og aðstoðarflokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær