Stekkjaskóli
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli

Sérkennari

Óskað er eftir sérkennara í 100% stöðuhlutfall frá og með 1. ágúst 2025. Leitað er eftir metnaðarfullum kennara sem starfar í nánu samstarfi við aðra kennara í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.

Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 380 nemendum í 1.-8. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga
  • Ber ábyrgð á að nemendur njóti kennslu samkvæmt megin markmiðum aðalnámskrá grunnskóla
  • Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda sinna
  • Sérkennari vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra
  • Að taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Framhaldsmenntun á sviði kennslu- og uppeldisfræða eða sérkennslu er æskileg
  • LOGOS-réttindi kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð   
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi
  • Góð færni í mannlegum samskiptum  
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt5. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar