

Forvarnarfulltrúi - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær óskar eftir öflugum forvarnafulltrúa
Vilt þú hafa jákvæð áhrif á líf barna og ungmenna?
Hafnarfjarðarbær leitar að metnaðarfullum og framsýnum einstaklingi í starf forvarnafulltrúa á Mennta- og lýðheilsusviði, skrifstofu æskulýðsmála.
Forvarnafulltrúi hefur það að markmiði að efla lýðheilsu barna og ungmenna, stuðla að þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og samhæfa forvarnastarf í sveitarfélaginu. Starfið felur í sér víðtækt samstarf við skóla, foreldrafélög, frístundastarf, félagasamtök og aðra lykilaðila í samfélaginu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýra og þróa forvarnaverkefni og tryggja að þau byggi á gagnreyndum aðferðum
- Vinna með skólum að uppfærslu forvarnaáætlana og veita ráðgjöf
- Halda utan um fræðslu og kynningar fyrir foreldra, starfsfólk og börn
- Tryggja að upplýsingar um forvarnir berist markhópum og samstarfsaðilum
- Stýra vettvangsstarfi og tengja það við áhættuhópa
- Vinna með fjölbreyttum samstarfsaðilum innan og utan sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A./B.S./B.Ed.)
- Áhugi og reynsla af forvarnastarfi með börnum og ungmennum
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að laga sig að breyttum aðstæðum
Laun eru samkvæmt kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní n.k.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, í gegnum netfangið [email protected]
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































