
ÍSBAND verkstæði og varahlutir
Íslensk-Bandaríska (ÍSBAND) er umboðs- og dreifingaraðili fyrir vörumerkin Jeep, RAM, Fiat, Alfa Romeo, Chrysler og Dodge á Íslandi. Hjá ÍSBAND eru nú um 40 stöðugildi. ÍSBAND bílaverkstæði sinnir ofantöldum vörumerkjum sem og 33"-40" breytingum á Jeep og RAM. Varahlutaverslunin flytur inn varahluti frá ofangreindum vörumerkum, öðrum USA merkjum og aukahluti. ÍSBAND er umboðsaðili fyrir AEV, Teraflex, Falcon, ARE og Bakflip. Verkstæði og varahlutaverslun eru í rúmgóðu húsnæði að Smiðshöfða 5, 110 Reykjavík þar sem góð aðstaða er til að taka á móti stórum pallbílum og húsbílum. Söludeild er staðsett í Þverholti í Mosfellsbæ.

Þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku
Vegna aukinna umsvifa leitum við að þjónustufulltrúum í verkstæðismóttöku.
Starfið felur í sér:
- Samskipti við viðskiptavini verkstæðis og verslunar
- Tímapantanir og innritun bíla í samráði við verkstjóra
- Uppsetningu og uppgjör reikninga
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingum sem njóta þess að eiga í samskiptum við fólk.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í ört vaxandi fyrirtæki þar sem ríkir góður starfsandi. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við viðskiptavini
- Tímabókanir á verkstæði
- Reikningagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta
- Lipurð í samskiptum
- Góð þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Heitur hádegismatur
- Úrvals kaffi
Auglýsing birt18. september 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Smiðshöfði 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiÖkuréttindiReikningagerðUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Helgarstarf í boði hjá Aurum
Aurum

Laugarvörður - Kópavogslaug
Kópavogsbær

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Þjónustufulltrúi fyrirtækja
Síminn

Viðskiptaráðgjafi hjá Igloo / Leiguskjóli
Leiguskjól

Afgreiðsla / Customer Service – Full Time Position
Brauð & co.

Pizzan óskar eftir starfsfólki
Pizzan

Starfsmaður í móttöku og þrif
CrossFit Reykjavík

Kjötkompaní - verslunarstarf
Kjötkompaní ehf.

Brennur þú fyrir þjónustu?
Dekkjasalan

Sölu-og þjónusturáðgjafi í verslun-Fullt starf
Sýn