

Starfsmaður á lager skurðstofa í Fossvogi
Við óskum eftir að ráða einstakling til starfa á lager skurðstofa Landspítala í Fossvogi. Við leitum að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi með mjög góða íslensku- og tölvukunnáttu sem vinnur af nákvæmni og hefur góða þjónustulund.
Starfið felst meðal annars í umsjón með pöntunum og lagervörum, umsjón með tiltektum fyrir skurðaðgerðir, vörumóttöku og daglegu skipulagi á lager. Starfið krefst góðrar yfirsýnar, skipulagshæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt og af nákvæmni.
Unnið er í dagvinnu frá kl. 07:30¿15:30. Starfshlutfall er 80¿100% og er gert ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. ágúst 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Íslenska























































