

Skrifstofustjóri endurhæfingarlækninga á Grensási
Við óskum eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing í starf skrifstofustjóra endurhæfingarlækninga á Grensási.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem unnið er náið með yfirlækni, sérfræðilæknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Starfið felur í sér umsjón með sjúkragögnum, fjölbreytt umsýslu- og skipulagsverkefni, samskipti við sjúklinga og aðstandendur auk þátttöku í þróun verkferla og upplýsingakerfa. Starfsmaður gegnir lykilhlutverki í að styðja við daglega starfsemi deildarinnar og tryggja góða þjónustu og skilvirka ferla.
Á Grensásdeild er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta fyrir fjölbreyttan hóp sjúklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa tapað færni, tímabundið eða varanlega, vegna slysa eða veikinda. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Fram undan eru jafnframt spennandi breytingar á starfseminni með opnun nýrrar og glæsilegrar Grensásbyggingar árið 2027 þar sem aðstaða fyrir endurhæfingarþjónustu verður með því besta sem gerist og styður við áframhaldandi uppbyggingu og þróun þjónustunnar.
Íslenska
Enska









































