

Hjúkrunarfræðingur - Heilbrigðisþjónusta fyrir börn á neyðarvistun Stuðla
Barna- og unglingageðdeild Landspítala leitar að reyndum hjúkrunarfræðingi til starfa í bráðateymi deildarinnar. Auk bráðaþjónustu felur starfið í sér að skipuleggja og veita heilbrigðisþjónustu við börn sem þarfnast neyðarvistunar á Stuðlum. Starfsstöð hjúkrunarfræðings verður á barna- og unglingageðdeild, en þjónustan verður jafnframt veitt á þeim stöðum þar sem barn er hverju sinni og er unnið í nánu samstarfi við þverfaglegt teymi fagfólks á barna- og unglingageðdeild auk annarra deilda Landspítala og Stuðla. Hjúkrunarfræðingi býðst markviss þjálfun og fræðsla, hérlendis sem erlendis.
Starfshlutfall er 80-100%. Starfinu fylgja bakvaktir en vel er gætt að hvíldartíma starfsfólks á deildinni. Ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi.
Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Á deildunum er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Þar starfa um 100 einstaklingar. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Teymisvinna er í kjarna starfanna á barna- og unglingageðdeild og handleiðsla frá reynslumiklum fagaðilum stendur til boða. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.
Íslenska









































